UM {OKKUR!}
Lyktir.is var stofnað árið 2026 af Lyktir ehf. Að baki fyrirtækinu standa tveir vinir sem deila miklum áhuga á ilmvötnum og öllu sem þeim tengist.
Hugmyndin að Lyktir.is kviknaði haustið 2025 hjá Atla, betur þekktum á samfélagsmiðlum sem Swöle Not Stinky, þar sem hann hefur deilt ilmvatnsáhuga sínum og fjallað um spennandi ilmi á TikTok.
Frá upphafi hefur markmiðið verið einfalt: að gera fleirum kleift að lykta vel og uppgötva frábæra ilmi.
Við viljum bjóða upp á fjölbreyttara úrval rakspíra og ilmvatna en almennt er aðgengilegt á íslenskum markaði. Hjá okkur finnur þú allt frá vinsælum dupe-ilmvötnum yfir í designer- og niche-ilmvötn, hvort sem þú ert að leita að nýjum einkennisilm eða vilt einfaldlega prófa eitthvað nýtt.
Úrvalið okkar er vandlega valið með það að markmiði að bjóða upp á ilm fyrir ólíkan smekk, árstíðir og tilefni.
Stór hluti úrvalsins samanstendur af dupe-ilmvötnum, sem sækja innblástur í þekkta og eftirsótta ilmi. Margir þeirra hafa notið mikilla vinsælda erlendis og á samfélagsmiðlum en hafa hingað til verið erfiðari að nálgast á Íslandi.
Við bjóðum einnig upp á 5 ml og 10 ml prufustærðir af völdum niche- og designer-ilmvötnum. Þannig þarftu ekki að fjárfesta strax í heilli flösku af dýru ilmvatni til þess að komast að því hvort ilmurinn henti þér.